Bylgju blogg

þriðjudagur, mars 10, 2009

Allt að ganga upp

Í dag fór ég í vaxtarsónar og kom í ljós að strákurinn er orðinn 13 merkur sem er víst 16% yfir meðalþyngd sem telst þó vera innan allra eðlilegra marka. Með þessar upplýsingar fór ég í mæðravernd á LSH en þar eru teknar allar ákvarðanir um mig. Læknarnir þar ákváðu að ef ég færi sjálf af stað mætti ég fæða á Selfossi en ef ég næ 40v og 3d verð ég sett í gangsetningu á LSH. Yrði gangsetningin örugglega 1. eða 2. apríl en Gummi er alveg harðákveðinn í því að 1.apríl sé ekki rétti dagurinn og ætlar hann að krefjast þess að ég verði ekki sett í gangsetningu fyrr en 2.apríl :) Ég hef þó ekki miklar áhyggjur af því þar sem ég ætla mér að vera búin að fæða fyrir þennan tíma hehe.

En að allt öðru....við keyptum okkur nýjan bíl fyrir viku síðan en það er alveg ekta fjölskyldubíll, Renault Megane Sport Tourer, 2004 módel. Við erum ægilega ánægð með þessi kaup en planið er að taka hann með okkur til DK í sumar til að geta krúsað um Evrópu í sumarfríum og til að vera ekki algjörlega háð rútum og lestum í daglegu amstri. Við tókum þó smá séns og settum ekki RAVinn uppí vegna þess að við hefðum fengið mun verri díl og ákváðum að reyna að selja hann eftir á. Ekki það að þetta sé eins áhættusamt og að eiga tvær húseignir en þá þykir ekki sniðugt í dag að vera með svona vitleysu í viðskiptum :) Við tókum þó hárrétta ákvörðun því í dag seldist RAVinn eftir stutta dvöl á sölu en við settum hann á sölu á laugardaginn :) Hann er víst á leið til Afríku og aldrei að vita nema maður sjái hann í höndum skæruliða í fréttunum eftir að hafa verið sprengdur upp eða eitthvað hehe....nei nei ég vona nú að hann fái góða eigendur þarna í Afríku :)

Eins og ég tjáði ykkur í síðustu færslu er ég hætt að vinna og meira og minna heima hjá mér....en ég er aldeilis ekki orðin leið því ég er alveg orðin húkt á þáttunum Felicity sem voru sýndir fyrir tæpum 10 árum síðan og var ég ekki lítið ánægð þegar ég fann þá á netinu :) En ég geri nú meira en að glápa á tv því ég er í sjúkraþjálfun og meðgöngusundi til að reyna að losna við eitthvað af þessum verkjum sem ég er með í mjöðminni.

Annars erum við orðin rosalega spennt á heimilinu og getum ekki beðið eftir að litli maðurinn komi í heiminn og þó svo það geti verið rosalega næs að eiga náttfatasunnudaga þar sem ekkert er gert nema að kúra undir sæng og horfa á tv þá erum við alveg tilbúin að fórna því fyrir nýja lífið sem bíður okkar :)

Kveðja frá hamingjusamasta heimilinu.

þriðjudagur, mars 03, 2009

36v 3d Hætt að vinna

Ég er orðin heimavinnandi húsmóðir þar sem grindin á mér gafst upp á miðvikudaginn. Ég er líka orðin rosalega ólétt núna, haltrandi um og er að springa úr bjúg! Ég held áfram í meðgöngusundinu og er byrjuð í sjúkraþjálfun til að reyna að létta á þessum verkjum og svo er það bara hvíld sem virkar best þannig að ég reyni bara að slaka á fyrir framan tv og tölvu og legg mig öðru hverju :-)

Það er nú ekki svo mikið eftir þar sem ég verð ekki látin ganga framyfir útaf meðgöngusykursýkinni sem ég greindist með forðum daga. Þó svo ég sé alveg að halda henni niðri án þess að þurfa að gera nokkuð þá er farið eftir ákveðnu ferli sem m.a. felur í sér að ég megi ekki ganga framyfir, nema þá í mesta lagi nokkra daga. Ég er nú samt að vona að ég fari bara sjálf af stað.

En þetta er svona það nýjasta í fréttum af mér.
Kveðja frá einni sem er að springa! :-)

mánudagur, janúar 19, 2009

Fer stækkandi....30v 3d

Sæl veriði lesendur góðir. Nú er maður kominn á síðasta þriðjung meðgöngunnar og þýðir það að maður er nú aðeins orðinn þyngri á sér :) Mér líður samt vel og finnst bara mjög skemmtilegt að vera ólétt og verð ég að viðurkenna að mér finnst alveg skuggalega stutt í að ég verði það ekki lengur!

Ég er búin að vera í auknu eftirliti útaf meðgöngusykursýkinni og var ég búin að gera miklar vonir um að dagurinn í dag yrði sá síðasti á LSH mæðraverndinni því að blóðsykurstölurnar mínar benda ekkert til þess að ég sé með meðgöngusykursýki. En nei yfirlæknirinn þar vill halda greiningunni á mér og þar af leiðandi þarf ég að vera í auknu eftirliti alla meðgönguna, sérstaklega í lokin. Það er samt náttúrlega bara besta mál að fylgjast vel með stráknum því maður vill að sjálfsögðu hafa vaðið fyrir neðan sig þegar svona dýrmæti á í hlut. Þetta þýðir þá fyrir mig að ég þarf að fara í 2 aukasónar (sem er reyndar bara skemmtilegt :)) og svo þegar ég er komin 37v. þá þarf ég að fara í monitor 2x í viku. Að lokum er ég ekki látin ganga framyfir, nema þá í mesta lagi eina viku. Ég fæ að eiga á Selfossi ef að stráksinn er ekki yfir meðal stærð en annars þarf ég að eiga í Rvk.

Það sem er annað í fréttum er að ég og Gummi fórum í 3D sónar í síðustu viku sem var alveg ofsalega skemmtilegt. Við fengum mjög skýrar myndir af stráknum okkar og það fór ekkert á milli mála að þarna væri strákur á ferðinni því hann var ekkert að fela typpið sitt :)

föstudagur, desember 19, 2008

Meðgöngusykursýki

Það er helst í fréttum að ég greindist með meðgöngusykursýki í dag. Ég var í mæðraskoðun á miðvikudaginn og mældist legið á mér töluvert yfir meðallag, 30 cm, en ég er gengin 25 vikur og á legið að fylgja því svona nokkurn veginn. Ég var því send í sykurþolspróf í dag og svo fór sem fór. Núna er stórt verkefni fyrir höndum fram í mars en það krefst þess að ég þarf að vera mjög hörð í mataræðinu. Ég fer í einhver viðtöl eftir helgi þar sem ég fæ blóðsykursmæli og leiðbeiningar um mataræði en ég hef náttúrlega googlað soldið mikið í dag til að kynna mér nánar hvað ég má og má ekki borða. Af öllum tímum ársins þá held ég að jólin séu versti tíminn til að vera með meðgöngusykursýki þegar maður er í ýmsum boðum og þarf að vera með eitthvað vesen á öllum stöðum.

miðvikudagur, nóvember 26, 2008

Áskorun

Þar sem ég hef verið að fá áskorun um bumbumynd ákvað ég að skella einni inn sem Gummi tók útí DK.

föstudagur, nóvember 21, 2008

It´s a boy!

Já það sást kúla og spotti þegar ég fór í 20.vikna sónarinn :) Ég fékk líka nýja dagssetningu, 28. mars svo ég er er komin 22 vikur núna á morgun, laugardag.
Ég er einnig búin að taka heiljarinnar vaxtarkipp og komin með myndarlega kúlu allt í einu! Finnst hún stækka með degi hverjum þessa dagana enda verður að vera nóg pláss fyrir Litla-Strump sem er farinn að sparka duglega í mig :)

Ég þarf að fara í auka sónar þegar ég er komin eitthvað um 32. vikur af því fylgjan var aðeins fyrir leghálsinum. Ljósmóðirin sagði að vísu að hún myndi færast upp þegar legið stækkar en það er vissara að athuga þetta svo hún verði örugglega ekki fyrirsæt þegar ég fer í fæðingu. Ég hef því litlar áhyggjur af því og fagna því að fá að sjá Litla-Strump fljótlega aftur :)

Fyrir þá sem þekkja ekki fyrirsæta fylgju:
Fyrirsæt fylgja er þegar hún er fyrir leghálsinum og afleiðing þess er keisari.

mánudagur, október 13, 2008

Trítlið


Jæja þá er maður að verða komin 16 vikur (4 mánuði fyrir ykkur sem ekki kunnið á vikur!). Bumban er aðeins farin að koma fram en ég finn ekkert fyrir neinu öðru en að puttarnir á mér eru svo fullir af vatni að ég get ekki lengur haft hringi á fingrum :( Ég fer í mæðraskoðun á miðvikudaginn þannig að þá kemur betur í ljós hvort að ég sé eingöngu að safna bjúg eða hvort það sé eitthvað meira að fylgja þessu en það er nú vonandi ekki.


Ég læt fylgja hérna mánaðar gamla mynd af trítlinu okkar Gumma en næsti sónar verður eftir ca 4 vikur og get ég ekki beðið eftir að fá að sjá það aftur :) Aldrei að vita nema við ákveðum að vita kynið þá :)



föstudagur, september 26, 2008

Laumufarþeginn

Já komið sæl og blessuð...bloggletin alveg í hámarki enda finnst mér ég aldrei hafa neitt merkilegt að segja.....en það hef ég nú :)

Það sem er helst í fréttum af okkur skötuhjúum er að þegar við vorum að flytja á Selfoss í sumar komumst við að því að við værum að fara að flytja með okkur laumufarþega :) Mikill spenningur ríkir í okkur og fengum við að hlusta á hjartslátt í fyrsta skipti í síðustu viku og fórum svo í sónar síðasta þriðjudag og fengum þar að sjá ansi líflegt lítið kríli :) Það tók soldinn tíma að ná nokkuð skýrri mynd af því þar sem það vildi bara vera að snúa sér í endalausa hringi, sparka og sprikla eins og það væri skemmtilegast í heimi þarna inni :D

Við sem sagt ætlum að breyta lítið plönum og stefnum áfram á það að flytja til DK þó svo við förum þrjú í staðinn fyrir tvö :)

föstudagur, september 19, 2008

Ég hugsa að enginn nenni orðið að koma hingað til að sjá hvort ég hafi bloggað....en ég ætla að blogga fljótlega :)

þriðjudagur, júlí 01, 2008

Lífið og tilveran

Komið sæl og blessuð....lífið og tilveran gengur sinn vanagang þessa dagana. Vinnan er alveg stórfín og bara mjög góð tilfinning að vera ekki að fara í skóla næsta haust. Flutningar verða líklegast um næstu mánaðarmót og er ég búin að safna fullt af kössum inní geymslu en kem mér ekki í að setja dót í þá! Úff!!! ...en ég hef engar áhyggjur af því, þetta verður lítið mál þegar maður kemur sér í gírinn með góða tónlist og bara gera úr því skemmtilega kvöldstund með kallinum :)

Það sem er að frétta af Gumma er að hann er á FULLU í boltanum núna. Spilar með Víði og eru þeir nú alveg að gera það fínt, eru t.d komnir í 16 liða úrslit í bikarnum og spila þeir á móti Fylki á morgun. Ég og Harpa erum að spá í að skutlast í Garðinn og horfa á leikinn ef það verður sæmilegt veður en svona miðað við hvað mbl.is segir þá virðist spá rigningu.

En það er eitt sem ég er farin að taka mér fyrir hendur aftur eftir margra ára hvíld og það er VEIÐI. Já þið lásuð rétt, stelpan er bara farin að veiða aftur eins og maður gerði ungur á árum og er ég búin að fara tvisvar að veiða og afli sumarsins kominn uppí 18 fiska ef ég tel rétt. Já ég er búin að moka upp! Verst að ég borða ekki fisk og hefur systir mín verið dugleg að borða hann fyrir mig því hún veit ekkert leiðinlegra en þegar ég sleppi þeim aftur hehe.

þriðjudagur, maí 13, 2008

BÚÚÚIIIIIN! YEAH!

Jæja þá er ég búin að verja verkefnið mitt og búin að fá einkunn fyrir það! (sem ég er btw. mjög ánægð með). Vörnin gekk ljómandi, kom efninu frá mér á 30 mínútum (mjög erfitt að setja svona mikið efni í 30 mín. fyrirlestur) og svaraði spurningum í 15 mínútur og er maður kominn í frí frá öllu skólastússi í bili!

Það er svo lítið annað að frétta af mér í augnablikinu og læt ég þetta gott heita í bili.

miðvikudagur, maí 07, 2008

EKKI í próflestri :D

AHHH hvað það er gott að vera ekki í próflestri þetta vorið! Jú mín er orðin vinnandi manneskja :-) Ég er sem sagt búin með lokaverkefnið og flutti æfingavörn í vinnunni í morgun sem gekk mjög vel og er ég búin að vera að fá hrós í allan dag eftir hana en á þriðjudaginn er svo ekta vörnin. Þó svo útskriftin sé ekki fyrr en um miðjan júní þá er ég búin að fá tvær útskriftargjafir. Mamma og pabbi gáfu mér hjól sem er núna óspart notað, sérstaklega í vinnuna og Gummi gaf mér rosalega fallegt hálsmen og eyrnalokka í stíl úr hvítagulli!

Síðan ég skilaði lokaverkefninu höfum við á heimilinu þurft að taka ýmsar ákvarðanir í sambandi við framtíðina, ég var búin að fresta öllum pælingum fram yfir skil en tvær ákvarðanir hafa verið teknar! Í ágúst erum við að fara að flytja á Selfoss og keyra á milli í rúmt ár og spara ógeðslega mikið því sumarið 2009 ætlum við að flytja á erlenda grundu, nánar tiltekið til Danmörku :D jej hlakka til (þó svo ég hafi aldrei farið þangað). Þar ætlar Gummi að fara í háskólanám í markaðsfræði og ég ætla í mastersnám, a.m.k á einhverjum tímapunkti þarna úti. Þannig að nú eru bara spennandi tímar framundan hjá okkur :)

laugardagur, apríl 19, 2008

Nokkuð viss um að fólk sé hætt að nenna að athuga hvort ég hafi bloggað þar sem það fer að verða tveir mánuðir síðan ég bloggaði síðast : )

Málið er náttúrlega að maður er á kafi í að skrifa lokaverkefnið, sem hefur nú þegar náð 47 bls. og fer stækkandi. Þetta fer svo fljótt að taka enda og þá verður maður ofsalega fullorðinn og fer að vinna fulla vinnu! Minnir mig á það hversu fyndin þau eru þessi systkini mín, þetta samtal átti sér stað fyrir stuttu síðan og til að hafa það á hreinu þá eru þau að skríða bráðum í 10 ára aldurinn.

Birgir Þór: Ohh Birgitta þú ert orðin svo mikil gelgja!
Birgitta: Já og hvað með það! Ég er nú að alveg að verða fullorðin! (*með mjög ákveðnum tón)

híhí ekki man ég eftir að hafa fundist ég alveg að verða fullorðin þegar ég var 10 ára (þótt ég hafi verið orðin soldið stór), varla að manni finnist það núna!

laugardagur, mars 01, 2008

Hvað er að frétta....

Mest lítið, þér best að segja...en ég skilaði þó 1.uppkasti af ritgerðinni minni í gær, ofsalega gott að klára svona fyrir helgi svo maður geti átt rólega helgi án samviskubits :)
Lokaverkefnið gengur alveg ágætlega, mér finnst mjög gaman að vera uppí Nimblegen á daginn (eða Roche Nimblegen eins og það heitir núna) og vesenast með DNA og alveg ágætt að fá smá frí frá fyrirlestrum...a.m.k í bili :)

föstudagur, febrúar 15, 2008

ÉG VIL FÁ HÁLSKIRTLANA MÍNA AFTUR!!!!!!......
...öskraði ein lítil 4ra ára stúlka að nafni Bylgja fyrir rúmum 20 árum síðan þegar hún lá á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir vöknun í kjölfar hálskirtlatöku. Ég man ennþá í dag eftir þessari dvöl. Það lá strákur mér við hlið, á svipuðum aldri, sem hét Jónatan. Man það af því mér fannst það voðalega fyndið nafn og ég átti mjög erfitt með að muna hvort hann héti Kasper, Jesper eða jónatan hehe.
En ég er að rifja þessa sögu upp af því ég hef fengið ósk mína uppfyllta! Ég er með hálsbólgu núna og ég fór að skoða hálsinn á mér með vasaljósi, og hvað sé ég?! Hálskirtla!!!....að vísu ekki stóra en þeir eru samt þarna! Svo ég fór að athuga hvort þetta væri fræðilegur möguleiki og jú það er víst þannig að ef þeir eru ekki fullkomlega fjarlægðir geta þeir komið aftur en ekki eins stórir og þeir voru fyrir.
Jahérna hér, ég vona að aðrir líkamsvefir sem hafa verið fjarlægðir úr mér fara ekki að koma allir aftur...að vísu er annar líkamsvefur sem var fjarlægður fyrir rúmum 7 árum orðinn stærri í dag en það er kannski frekar af því ég hef farið stækkandi síðan þá :)

...btw ef ég renn í fljótu bragði yfir sjúkrasögu mína þá hef ég farið í fjórar aðgerðir þar sem líkamsvefur/líffæri hefur verið fjarlægt...

þriðjudagur, janúar 22, 2008


Sælt verið fólkið.

Langt síðan maður hefur látið í sér heyra hér. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég bloggaði hér síðast.

Ég skráði mig í skóla sem byrjar núna í febrúar. Námið sem ég er að fara í heitir Sölu-markaðs og rekstrarnám í Nýja, tölvu og viðskiptaskólanum.

Svo hefur maður bætt nokkrum grömmum (kg) á sig og er maður byrjaður að REYNA brenna bumbuna burt.

Bylgja orðin 25 ára og stutt í gráu hárin hjá henni en ekki hjá mér þar sem ég hef engin hehehehehehe.

Komin enn ein borgarstjórnin.

Ég hreinlega skil ekki fólk sem nennir að standa í þessu rugli með pólítíkina.
Maður vaknar einn daginn og allt í góðu og áður en maður er byrjaður að melta hádegismatinn er búið að skipta um borgarstjórn aftur.
Ætli vitleysan nái ekki hámarki ef Ólafur F-lista verði lasinn í einn dag með flensu og Margrét (shit hvað hún er leiðinleg) detti inn í einn dag og þá verður skipt um Borgarstjóra þann dag og daginn eftir kemur annað hvort Ólafur eða Villi heimski og sest í stólinn. Þessu rugli verður að linna og hendum öllum flokkum þaðan út fáum nýtt fólk þarna inn sem hugsar um fyrir okkur borgarbúana. Það er bara enginn flokkur í borginni sem er með viti. Sjálfstæðispakkið vill völd sama hvað það kostar, Samfylking með það og sjálfstæðispakkið(VÁ HVAÐ ÉG ER FEGINN AÐ DAGUR. LEIÐINLEGI SÉ FARINN ÚR BORGARSTJÓRN) Björn Ingi í framsókn fer þangað sem vindurinn feykir honum(ódýr mella) og ætli hann sé ekki á leiðinni í steininn fyrir skattsvik?? Hver veit. Svandís er örugglega heima að gráta því þetta var hennar eini séns á að vera í borgarstjórn, mér fannst hún ætla að fara að gráta í fréttunum í gær.
Núna næstu 2-3 mánuðina verða fréttirnar þannig: Dagur, Björn, Margrét og Svandís verða vælandi í fréttum og saka Ólaf um að ljúga (leikskólaslagurinn að hefjast) Óli segir nei, svo verður sjálfstæðispakkið sakað um að gera allt til að komast aftur í Borgarstjórn(kannski er það bara satt).
Og núna er maður að horfa á fréttirnar og allt sem stendur hér að ofan er að rætast.
Þetta er ljóta ruglið.

miðvikudagur, janúar 02, 2008

Nú árið er liðið....
Já ótrúlegt en satt er 2008 gengið í garð. Þetta er árið sem ég og bekkjarsystur mínar höfum beðið eftir og er ég varla að trúa því hvað þetta hefur verið fljótt að líða.

Árið 2007 upplifði ég bæði up´s and down´s eins og gengur og gerist og ætla ég að rifja upp helstu atriði ársins.
Í byrjun árs hætti ég að reykja og má því nefna að ég á bráðum 1.árs afmæli í reykleysi og það var aldrei "svindlað" á árinu, ekki einu sinni löngun til þess svo mér finnst að ég eigi skilið að fá klapp á bakið fyrir það!
Ég hóf líka vinnu hjá Nimblegen í byrjun síðasta árs og er ennþá starfandi þar. Núna verður sú breyting á að ég er að fara að vinna á rannsóknarstofunni hjá þeim og byrja að vinna að lokaverkefninu mínu þar innan tíðar og er ekkert nema tilhlökkun í mér vegna þess.

Sumarið var ofsalega gott og fórum við Gummi í nokkrar útilegur, m.a. tvö ættarmót í minni fjölskyldu sem mér finnst alltaf jafn gaman að vera á. Við tókum líka þó nokkra golfhringi en ég er hrædd um að ég þurfi að fara að taka upp æfingar aftur í Básum ef maður á að geta eitthvað næsta sumar!
Í lok sumar fórum fórum við Gummi til Krítar og áttum yndislega viku þar í sól og sumaryl. Sú ferð leiddi til þess að við trúlofuðum okkur þann 15 september.

Erfiðasta tímabilið á árinu var án efa veikindi og lát Þórunnar, systur hennar mömmu. Minningin um hana lifir með okkur og ég er án nokkurn vafa um það að henni líður vel þar sem hún er.

En árið 2008 verður örugglega ofsalega skemmtilegt og viðburðarríkt og er mesta tilhlökkunin tengd því að ég verð lífeindafræðingur við enda þessarar annar!
Gummi byrjar í febrúar í sölu-, markaðs- og rekstarnámi og verður það algjörlega aukalega við vinnuna þannig að það má búast við því að það verði mikið að gera hjá okkur á árinu og verður það eflaust fljótt að líða eins og árin þar á undan.

Að lokum vil ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og kærar þakkir fyrir allt á því ári sem er að líða.

miðvikudagur, desember 19, 2007

Jólafrí!
Sælir bloggskoðaðendur. Nú er maður bara í jólafríi og búin að vera það síðan 10.desember. Ýmislegt hefur verið brallað og sjaldan hefur jólafílingurinn verið meiri. Búin að kaupa allar jólagjafir, búin með jólakortin, búin að pakka inn jólagjöfunum og búin að taka eldhúsið í gegn. Á morgun verður svo farið í jólaklippinguna og þá get ég bara fengið jólin! Ég er að vinna á föstudags-og laugardagskvöldið svo það verður ekkert próflokadjamm með vinkonum en ég hef hvort sem er ekki gert það síðan jólin 2004 þegar hið fræga rot á kaffibarnum átti sér stað! hehe alltaf jafn fyndið að hugsa til baka...en langar þó ekki að upplifa þetta aftur.

En ég ætlaði bara rétt að láta vita af mér...frekari fréttir koma síðar.

miðvikudagur, desember 05, 2007

Próftímabil!

Jæja jæja þá er ég á miðju kafi í síðasta próftímabili þessa náms. Ég fór í próf í morgun og gekk þaðan út full sjálföryggis um háa einkunn en spurning hvernig fer með næsta próf sem er á mánudaginn.

Ég var búin að ákveða það fyrir nokkrum dögum að ég færi í sund í dag sökum stanslausra verkja þessa dagana og dró ég hana Sigrúnu með mér og höfðum við alla pottana og sundlaugina fyrir okkur! Við erum nú með líkama á við gamalmenni þessa dagana þannig að við prófuðum alla nuddstúta sem við fundum + dúndur nuddtækið...bara næs! Núna er ég bara ógeðslega þreytt og vona að líkaminn minn haldi ekki að hann eigi að vera í svona slökun á næstunni því ég þarf jú að leggjast í annað holl próflesturs á morgun, ekki seinna en kl. 8:15.

Á mánudaginn dett ég inní jólafríið mitt + vinnu og er ég búin að plana ansi mikið, t.d ætla ég að setja upp jólagardínur í eldhúsið í fyrsta skiptið :D

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Lokaverkefni og framtíðin...

Ég er komin með lokaverkefni á vinnustaðnum mínum, Nimblegen, sem kallast "Aðferðarþróun í merkingum á DNA fyrir örflögurannsóknir". Ég að vísu byrja örugglega ekki framkvæmdina sjálfa fyrr en í janúar en ég er afskaplega spennt fyrir næstu önn því hún verður bæði krefjandi og örugglega skemmtileg og verður gaman að takast á við nýjan vettvang.
Lokaverkefnið mitt er 12 einingar og er því full vinna í 12 vikur en líklega vinn ég að rannsókninni sjálfri í janúar-mars og nota svo fyrri hluta apríl mánaðar til að klára að skrifa lokaskýrsluna sem líklega verður ca 70 bls. að lengd.

Mér finnst ofsalega skrýtið hvað það styttist í það að ég verði lífeindafræðingur og mér finnst alltof mikið af stórum ákvörðunum sem ég þarf að taka fljótlega í sambandi við framtíð mína. Eitt veit ég að framtíðin er björt og ekkert nema bjartsýni í mér. Það er bara málið að ég er náttúrlega svo skipulögð að ég vil helst vera með niðurskrifað skiptulag fyrir næstu 10 ár lífs míns hehe...en eins og er þá er ég einungis búin að skipuleggja næstu 6 mánuði (í huganum samt, ekki á blaði! :D).

Það hefur verið svo auðvelt hingað til að vita alltaf hvað gerist næst. Fékk að vísu svipað tremma þegar ég þurfti að velja mér háskólanám árið 2003 og finnst stundum að maður eigi að hafa svona persónulegan ráðgjafa sem maður getur leitað til og hann bara segir manni hvað sé réttasta ákvörðunin og hvað kemur best út fyrir mann :)...en nei lífið er ekki alveg svo einfalt...maður þarf víst að ákveða sumt sjálfur.

P.S...AFI!!!!!!